Í verkum Tolkiens endurspeglast að mörgu leyti tvenns konar ólík sýn á heiminn. Annars vegar má sjá mikil áhrif frá forn germönskum hugmyndum; hins vegar er lífssýn kristinna, og þá einkum kaþólikka, mjög sterk. Nálgun hans við hetjur og hetjuskap eru meðal þess sem að er mjög litað af viðhorfum hvors tveggja. Tom Shippey (2005: 175-180) gerir því skóna að hetjur Tolkiens endurspegli togstreitu milli mismunandi hugmynda þessara tveggja lífsskoðana á því, hvað sé hetjuskapur. Víst er að...