Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Crabbe og Goyle (2 álit)

í Harry Potter fyrir 18 árum
Var ekki sagt í fyrstu bókinni að þeir væru á þriðja ári? En samt eru þeir ennþá í skólanum í sjöttu bókinni? Gæti þá verið að þeir hafi fallið eða eitthvað? Endilega leiðréttið mig ef ég er að rugla eitthvað.

könnunin (1 álit)

í Raunveruleikaþættir fyrir 18 árum
það vantar valmöguleikann “ég gubba úr leiðindum yfir báðu”.

Áhugavert en kjánalegt (39 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum
Ég var að komast að því í dag að maður þarf að vera orðinn 18 ára til að mega kaupa nikótíntyggjó eða aðrar slíkar vörur. Vinur minn er að hætta að reykja og taka í vörina, en getur samt ekki keypt sér nikótíntyggjó til að hjálpa sér við að venja sig af þessu. Finnst engum öðrum þetta kjánalegt?

Google Earth (34 álit)

í Vísindi fyrir 18 árum
Er einhver með þetta forrit? Ég náði í það fyrir viku eða svo, og get ekki hætt að vera í því. Ég hef mikinn áhuga á landafræði og þess háttar, og ég ræð mér ekki fyrir kæti þegar ég get skoðað alla jörðina svona. Sumir staðir eru auðvitað miklu nákvæmari er aðrir, t.d. er hægt að fara svo nálægt jörðinni í helstu stórborgunum, að maður sér fólk og bíla á götunum! Heimurinn virkar líka allt öðruvísi svona. Hafiði prófað þetta?

24 (16 álit)

í Spenna / Drama fyrir 18 árum
http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1195812;rss=1 Þrjár seríur í viðbót? Finnst engum öðrum þetta vera orðið frekar þreytt… ég meina, fyrsta og önnur serían voru fínar… en vá, átta seríur samtals?

Góðir diskar (4 álit)

í Rokk fyrir 18 árum, 1 mánuði
Segjum að einhver vilji senda inn umfjöllun í “Góðir diskar”. Hvernig færi sá að því?

Jurtahúðflúr (23 álit)

í Tíska & útlit fyrir 18 árum, 1 mánuði
Hvar get ég fengið svoleiðis? Og hvað myndi mynd sem væri um það bil 3x3 cm kosta? Ég reyndi að leita í gömlum þráðum hérna en það svaraði aldrei neinn af viti, sögðu allir bara “mímímí ekki fá þér þannig”. Sleppið þannig bara, takk.

Stuttmyndasamkeppni Huga! (8 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 1 mánuði
Allir að vera með! http://static.hugi.is/stuffnfiles/

Stjórnandi... (8 álit)

í Myndlist fyrir 18 árum, 1 mánuði
Það þarf nýjan stjórnanda hérna… gaaah

Þátturinn í dag (3 álit)

í Sápur fyrir 18 árum, 1 mánuði
Hvað gerðist?

Gettu betur (23 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 1 mánuði
Til hamingju MA :D

Öh (2 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 1 mánuði
Hvað hvarf af forsíðunni? Hún er eitthvað öðruvísi.

HJÁLP (grátandi stelpa) (9 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 1 mánuði
Það veitti enginn korkinum mínum fyrir neðan athygli, svo ég kem hérna með aðra tilraun, og betri útskýringu á málunum. http://i2.tinypic.com/t62kx4.jpg Þetta kemur þegar ég kveiki á tölvunni minni. Hvað er að?

Asus (0 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 1 mánuði
Ég er með svona Asus fartölvu einhverja. Þegar honum finnst eitthvað vera að, þá blikkar svona Warning merki í horninu. Það blikkar t.d. ef ég fylli eitthvað drif, eða hitinn fer yfir 90°. Núna blikkar einmitt svona merki, en þegar ég smelli á það er eins og ekkert sé að, og það kemur alveg tómur Asus glugginn. Það stendur bara Normal einsog ekkert sé að, og ég sé ekki einusinni þær tölur sem ég sé venjulega í þessum glugga. Síðan loka ég glugganum, og þá byrjar merkið aftur að blikka í...

Grein (35 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 1 mánuði
Mér leiðist mikið og mig langar að skrifa einhverja grein. Einhverjar hugmyndir um hvað hún á að vera?

Nöldur dagsins (36 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 1 mánuði
Ég hata skólann minn svo mikið. Við þurfum að fara í próf á laugardegi! Og ég get það ekkert, ég bý á heimavist og þarf alltaf að fara heim um helgar. En það er víst ekki fræðilegur möguleiki á að færa prófið á einhvern annan dag, og ég veit ekki afhverju. Og svo kúkaði áfangastjórinn bara á mig þegar ég sagðist ekki geta verið hérna á laugardegi. Búhúhú allir að vorkenna mér ég á svo erfitt líf.

Klippa hljóð (7 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 1 mánuði
Er til eitthvað forrit sem ég get notað til að klippa niður hljóð og lög? Semsagt, tekið bara fimm sekúntna bút eða eitthvað úr lagi og vistað það sér?

brain eating (37 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 1 mánuði
er brain eating draslið dáið? Site overloaded You might want to play Urban Dead instead, if you were looking for zombies.

Tenglarnir (2 álit)

í Stjórnmál fyrir 18 árum, 1 mánuði
Tengillinn á Frjálslynda flokkinn virkar ekki.

/ÍSLENSK TÓNLIST (22 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 1 mánuði
Það þarf að fá nýja stjórnendur þarna.

ie (17 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 1 mánuði
hvernig set ég IE aftur sem default browser? Firefox er leiðinlegt og ég fæ miklu fleiri vírusadrasl af því heldur en IE.

könnunin (5 álit)

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 1 mánuði
Hver er munurinn á “já” og “fokk já”?

Vákur? (24 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 1 mánuði
http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1190834;rss=1 Voru vákar ekki þarna draugahestarnir í Harry Potter?

Tíhíhí (8 álit)

í Húmor fyrir 18 árum, 1 mánuði
Hvað þarf marga emo-krakka til að skipta um ljósaperu? -Engan, þau sitja bara í myrkrinu og grenja yfir því…

hvítar flísar?? (7 álit)

í Heimilið fyrir 18 árum, 1 mánuði
ég er með hvítar flísar á gólfinu á baðherberginu hjá mér, en málið er að þær hafa tekið einhvern lit í sig, og ég veit ekki með hverju á að þrífa þær til að gera þær hvítar og fallegar aftur… það eru svona dökkir blettir einhvernveginn…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok