Er einhver með þetta forrit? Ég náði í það fyrir viku eða svo, og get ekki hætt að vera í því. Ég hef mikinn áhuga á landafræði og þess háttar, og ég ræð mér ekki fyrir kæti þegar ég get skoðað alla jörðina svona. Sumir staðir eru auðvitað miklu nákvæmari er aðrir, t.d. er hægt að fara svo nálægt jörðinni í helstu stórborgunum, að maður sér fólk og bíla á götunum!
Heimurinn virkar líka allt öðruvísi svona.

Hafiði prófað þetta?