ehh, fólk sem er með sameiginlegt forræði nú þegar, hefur það oftast þannig að pabbinn tekur börnin aðra hverja helgi… þau verða að komast að samkomulagi.
ég held að það sé ekki meiningin sko. meira svona að sameiginlegt forræði, og jafn réttur til umgangs við börnin, gildi fyrir báða foreldra, nema annað þeirra hafi formlega afsalað sér forræði…
Ég held að þetta sé bara til að bæta réttindi sumra feðra. Þar sem móðirin hefur í flestum tilvikum forræði yfir börnum, og bannar jafnvel föðurnum að hitta þau, jafnvel þó hann sé fínasti maður og vilji fá að eyða sem mestum tíma með þeim.
Ég er ekki kristinn, en ég er samt trúaður á minn hátt. Mér væri samt nákvæmlega sama ef einhver myndi gera skopmynd sem tengdist minni trú, sérstaklega ef hún væri fyndin.
Ég er sammála. Þetta eru bestu brandarar í heimi. Við dauðrabarnabrandaraaðdáendur ættum að búa til okkar eigin síðu þar sem við gætum verið fyndin í friði.
mamma hennar, Kerry, varð fyrir slysaskoti þegar hún var að mótmæla einhverjum fuglaveiðum… (hún var svona “treehugger” eitthvað…) pabbi hennar, Joe Mangel, býr svo úti í sveit lengst í burtu einhversstaðar með nyju konunni sinni…
Haha ég líka. Við Íslendingar erum með svo hrikalega mikla þjóðerniskennd, bara vegna þess að einhverjir eru alltaf að blása út eitthvað hvað við erum góð í öllu “miðað við höfðatölu”… haha. Við erum svo kjánaleg.
Ha? Ertu drukkinn eða eitthvað? Íslendingarnir geta heilmikið í handbolta! Þó við höfum tapað einum leik, þýðir það ekki að við getum ekki neitt. Við unnum Rússland. Og við komumst svona langt. Og við höfum komist langt á EM og HM oft áður. Þú ert bara að sýna þig og vera með gelgjustæla. Vantar þig athygli?
Kvartaðu yfir þessu. Kennarar mega ekki gera upp á milli nemenda. En annars eiga skólastjórnendur oft mjög erfitt með að skilja nokkurn skapaðan hlut. Þeir sjá þetta sem svo, að þó að einn fái séns, kemur það öðrum nemendum ekki við.
Já, ekkert smá sturlaður náungi. Ég hélt að þessi leikur yrði frekar auðveldur, Norðmenn voru með 0 stig í riðlinum. En hvað svo, einhver sem gleymdi að taka rítalínið sitt skorar 18 mörk í einum leik…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..