Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Nýja kylfan mín (9 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Ég keypti mér nýja brautartréð frá Titleist sem heitir 980F og það er geðveikt! Ég fékk mér með graphite regular skafti og 15 gráður. Það sem ég elska við kylfuna er að ég get slegið með henni öll högg, á teig, á braut og í röffi. Þeir sem eru að leyta að 3 tré ættu að prófa þessa ;o) <a href="http://www.mbl.is/mm/sport/golf/frett_utbun.html?nid=1037126">Frétt um 980F á mbl.is</a

Garcia skiptir aftur í Pro V1 (2 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Sergio Garcia skrifaði undir stóran samning við Adidas, Taylor Made og Maxfli (öll í eigu sömu aðila) fyrr á þessu ári. Því miður hefur hann reynst þeim slæm auglýsing því honum hefur gengið hörmulega síðan. Til að bæta gráu ofan á svart hefur Garcia nú ákveðið að skipta aftur í Titleist Pro V1 sem þótti ekki vinsælt hjá fyrirtækjunum og nú er allt í háloftunum… Ég vona að Garcia fari að finna sig á ný því hann er minn uppáhaldskylfingur.

Nýjir Pro V1 og Pro V1x boltar (4 álit)

í Golf fyrir 21 árum
ekki vera fúlir… textinn í greininni er tekinn af golfsíðu mbl.is en með nokkrum breytingum… ———————— Eftir margra mánaða sigurgöngu á PGA mótaröðinni hefur Titleist nú kynnt nýja kynslóð Pro V1 golfbolta: Pro V1x og endurbættan Pro V1. Endurbætti Pro V1 er hannaður fyrir kylfinga sem hafa fjölbreyttan sveifluhraða en nýji Pro V1x boltinn hentar kylfingum með hraða sveiflu. Endurbætti Titleist Pro V1 boltinn er hannaður með þarfir þeirra kylfinga í huga sem hafa hægan eða meðal sveifluhraða....

Insider á Augusta (0 álit)

í Golf fyrir 21 árum
http://www.scottycameron.com/sc__8147.htm# Hérna má sjá skemmtilegar myndir sem Scotty Cameron sjálfur tók á Augusta meðan á æfingahringjunum stóð…..
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok