Sergio Garcia skrifaði undir stóran samning við Adidas, Taylor Made og Maxfli (öll í eigu sömu aðila) fyrr á þessu ári. Því miður hefur hann reynst þeim slæm auglýsing því honum hefur gengið hörmulega síðan.

Til að bæta gráu ofan á svart hefur Garcia nú ákveðið að skipta aftur í Titleist Pro V1 sem þótti ekki vinsælt hjá fyrirtækjunum og nú er allt í háloftunum…

Ég vona að Garcia fari að finna sig á ný því hann er minn uppáhaldskylfingur.