Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

mrjakob
mrjakob Notandi frá fornöld 14 stig

Re: slagsmál í bænum

í Bardagaíþróttir fyrir 22 árum, 12 mánuðum
hehe ok, þá get ég auðvitað verið fullkomlega sammála þér… ég held einmitt að ég hafi notað gæsalppir (minnir það allavega) utan um “götubardagamenn” af því að mér finnst þeir einmitt ekki heldur vera bardagamenn og var það í raun heila pointið með innlegginu mínu… ps. djöfull erum við örugglega báðir að drífa okkur þegar við erum að skrifa og lesa…

Re: Þetta er nú meira vandamálið.

í Bardagaíþróttir fyrir 22 árum, 12 mánuðum
já sammála, það er mjög nauðsynlegt að passa barkakýlið, það er mun aumara en flestir halda og getur hreinlega “sprungið” og þá er mjög illt í efni… viðkomandi getur auðveldlega kafnað þannig, nema það sé t.d. stungið gat fyrir neðan barkann (sem þarf að passa að gera nákvæmlega rétt). …sem sagt passa barkann:) ekki það að það sé mjög holt að loka á blóð til heilans..:Þ

Re: fyndið

í Bardagaíþróttir fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Já, þetta gæti auðvitað virkað í smá stund en sá sem heldur þarf þá að vera töluvert sterkari og verður að ná vel utan um viðkomandi til að geta læst höndum um hann. Því næst væri hentugt fyrir HANN að lækka þyngdarpunktinn og buga árásarmanninn þannig í jörðina, ef mikill styrktarmunur er, þá ætti hann að geta reddað þessu þegar þangað er komið, svo lengi sem árásarmaðurinn sé ekki vanur grapplari… Annars gæti þetta nú verið varasöm aðferð þar sem að í fyrsta lagi eru svona götuslagsmál...

Re: slagsmál í bænum

í Bardagaíþróttir fyrir 22 árum, 12 mánuðum
aha, þú meinar…

Re: Hverjum heldur......

í Box fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Ef það á að taka einhvern einn sem sker sig úr (ú öllum þyngdarfl.) er það að sjálfsögðu Tyson, hver annar? ;)

Re: Lélegasti boxari allra tíma

í Box fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Persónulega held ég að ástæðan fyrir því að þetta hefur aldrei verið rætt, sé sú að það er bara einfaldlega ekki hægt. Til að byrja með má deila um hvað “boxari” er, þ.e. telst maður sem hefur mætt á 3 boxæfingar vera boxari? ef svo er þá er hann alveg örugglega lélegri boxari en þessi Reggie Strickland (sem ég reyndar veit ekkert hver er)… Ahl: hvernig þekkiru þennan mann sem fékk WBF titleshot?

Re: Hvað er málið með ríginn?

í Box fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Nei það er nú ekki mikið plássið þarna uppi, en á móti kemur að þessi salur á efri hæðinni er lítið sem ekkert notaður (held ég) og því væri nú alveg HÆGT að troða einun stikki hring þangað, allavega ef hann væri lítill (og lágur, hehe). Hvernig er það annars, er alveg nauðsynlegt að hafa hring við höndina á æfingum? Ég meina það er t.d. enginn hringur í Pumping Iron er það? Sérstaklega af því ég held að pointið með þessu sé ekki að búa til einhvern boxklúbb heldur bara hafa boxtíma fyir þá...

Re: Hvað er málið með ríginn?

í Box fyrir 22 árum, 12 mánuðum
En segiði mér (þó að þetta komi þessum korki kannski ekki alveg við), er sú boxkennsla sem á að koma á næstu vikum í Gym 80 (eða Gym líkamsrækt eins og það heitir núna) á vegum Hnefaleikafélags Reykjavíkur? Mér datt bara í hug að spyrja að þessu hérna þar sem að fulltrúar félagsins eru að fylgjast með þessari umræðu… (þ.e. ef að icebox er einn af stjórnendum HR. Annars veit ég ekki neitt og biðst afsökunar á því…:Þ)

Re: slagsmál í bænum

í Bardagaíþróttir fyrir 22 árum, 12 mánuðum
En þú talar eins og að “götubardagamenn” séu eitthvað þvílíkt klárir í grappli jafnt sem lásum og vottever, hefurðu einhverntíma séð geðveit útspökileruð götuslagsmál? Ég sé allavega aldrei götuslagsmál, nema að: 1) annar (þá oftast stærri og sterkari) slátrar hinum, þá annaðhvort með þ´vi að henda honum til og frá eða með því að vinna á smettinu á honum. 2) um meira en 2 sé að ræða… 3) eða menn kljáist bara eitthvað (eins og í sexárabekk) á jörðinni. Allar þessar tegundir af götuslagsmálum...

Re: Box í götuslagsmálum

í Box fyrir 23 árum
Fyrir utan það að ég skil nú bara varla af hverju menn eru að svara þessum manni, þá er ég alveg sammála öllum hinum. Fight4live, þú talar um að Bjarni geti lamið alla þessa menn, og efast ég alls ekki um það, en heldurðu að það eigi ekki við um flesta þá sem að hafa æft í áraraðir? T.d. bara þú, svo ekki sé talað um Halldór og fleirri…? ps. persónulega veit ég ekki betur en að Sniglarnir sé bara mjög friðsamlegir og í þeirra hópi sé að finna ófrískar konur jafnt sem karla sjötugsaldrinum

Re: slagsmál í bænum

í Bardagaíþróttir fyrir 23 árum
já já að mínu mati eiga þeir menn sem fara að “æfa einhver trikk” á hvor öðrum og prófa þau svo bara á einhverjum í bænum helgina eftir, skilið að deyja… Þetta er eitt það hallærislegasta sem ég hef heyrt sérstaklega þar sem að þessir menn ráðast örugglega alltaf á minni máttar, beila síðan og monta sig af þessu. Einnig tel ég það ekki “fight club” að hittast og æfa trikk, allavegana ekki samkvæmt samnefndri kvikmynd, í henni hittust menn til þess eins að slást við aðra sem vildu slást....

Re: Bekkpressa

í Box fyrir 23 árum
jú það er mót í nóvember, en Héðinsmótið á Ólafsvík er ekki gilt mót, því það er ekki á vegum kraft. En núna er 120 það mesta sem ég hef tekið, ég hef aldrei reynt við neitt meira.

Re: Bekkpressa

í Box fyrir 23 árum
ég var 187-8 og 75 kíló (er 85 kg núna), þótti vangefið að svona “grindhoraður maður” (eins og STÓRU strákarnir segja) með svona langar hendur lyfti þessu. En því miður (fyrir þig, ekki mig) verð ég að hryggja þig með því að segja þér að það er ekkert mót í sumar sem að hægt er að bæta þetta á.

Re: Bekkpressa

í Box fyrir 23 árum
það er miðað við árið, verðuru 18 á þessu ári?

Re: Box

í Box fyrir 23 árum
ég veit alveg (eins og flestir hérna) að bestur1 er bara að reyna að vera fyndinn og hefur hann væntanlega búið til þetta úthugsaða nick bara í þeim tilgangi. En hvað er samt fólk eins og sveinsina (sem í alvörunni er ekki viss um ágæti íþróttarinnar)að gera hérna inna? ps. “klikkaða” menn má finna í hvaða íþrótt sem er, sem og alls staðar annars staðar.

Re: Bekkpressa

í Box fyrir 23 árum
ég tók 113, það er metið. en ég var líka löngu búinn að taka 115, en gerði það bara aldrei löglega, þ.e. ég lét stöngina svona hálfpartinn skoppa á brjóstinu og lyfti jafnvel rassinum… það að gera löglega lyftu er alveg allavega svona 10 kg. erfiðara (þ.e. ef maður svindlar mikið). hvað ertu annars þungur og hár? virðist vera helöflugur;)

Re: Bekkpressa

í Box fyrir 23 árum
af hverju? hvað ertu gamall og hvað tekuru mikið? eins gott fyrir þig að slá það ekki!!! ;Þ

Re: Bekkpressa

í Box fyrir 23 árum
já ég á íslandsmetið í bekkpressu í flokki drengja undir 75 kg. en til að fá lyftu gilda sem met þarf hún að vera lögleg, þ.e. það þarf að stoppa uppi og niðri, stöngin verður að fara bein upp og hvorki rass né fætur mega hreyfast. en í flokki fullorðinna er þyngdin einhver 175 kíló minnir mig frekari upplýsingar á kraft.is

Re: Ísland - Svíþjóð??????????

í Box fyrir 23 árum
já nákvæmlega það sem maður sá af þessum myndum var mjög flott! þarna var hann alveg jafn flottur og hann var lélegur á móti könunum…

Re: Er...

í Box fyrir 23 árum
ó ok, en var þetta íslendingur?

Re: Er...

í Box fyrir 23 árum
ertu viss um að hann hafi ekki verið að ljúga? lífvörður Tiger Woods?

Re: hahaha

í Box fyrir 23 árum
Auðvitað er kvennabox í flestum tilfellum alveg ömurlegt box tæknilega séð, en ég er samt ósammála því að það sé leyðinlegt að horfa á það! Mér finnst einmitt mjög skemmtilegt að horfa á það, því að oft eru báðir aðilar að sækja allan tímann og sér maður því oft einhverjar “sveiflur” hitta beint í mark, þ.a.l. getur allt gerst í svona bardögum, því að þó að höggin séu kannski aflminni þá er haka á keppendum þeimun aumari. Það kvennabox sem maður sér í sjónvarpinu (sýn) er líka oft á milli...

Re: Yeah!!

í Box fyrir 23 árum
finnum nú eitthvað nýtt nafn á greyið drenginn! hann vill það meira að segja sjálfur!

Re: Hjálp!

í Bardagaíþróttir fyrir 23 árum
já ef þú ferð í svona “u-begju” til vinstri eftir að þú kemur inn í innra herbergið, beygjir þig niður og fótar þig lengst til hægri… ;Þ já eða spyrð í afgreiðslunni. Annars held ég að þar séu engin kennslumyndbönd, þó að ég sé ekki alveg viss. Síðan er líka hægt að fá eitthvað af þessum spólum í gravarvogi, ég held að það sé í spaunginni og heiti bónus video.

Re: Hví hrífst kvennfólk svona mikið af Boxurum???????

í Box fyrir 23 árum
Ahl: i hate to brake it to you, en ég held að þetta hafi ekki verið Kolbrún Halldórsdóttir í alvörunni…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok