Ég held að hver manneskja sé það sem hún trúir, ekkert meira og ekkert minna. Hitt er annað mál, að það er erfit hverjum manni að átta sig á hverju hann trúir í raun, og þarf þá ekki frekar að horfa til himins heldur en á tærnar á sjálfum sér. Einhvertíman var sagt “Maður líttu þér nær”. Ég held að enginn geti verið trúlaus, því eins og ég nefndi áður, þú ert það sem þú trúir.