Þetta voru mjög skemmtilegir tónleikar. Ég er enginn aðdáandi en langaði samt að sjá þetta, hafði líka keypt miða til að komast á Pixies, og ákvað bara að skella mér og fannst þetta alveg frábært. Sérstaklega var það mögnuð upplifun þegar bara voru vélmenni á sviðinu, og alltaf gaman að heyra The Model. Tók ekki einhver myndir af þessu? Maður sá að fólk var að smella af hér og þar þótt það væri bannað að taka myndir, það væri gaman að fá að sjá þær.