Árið var 1997. Komið var fram í miðjan október, það var ekki farið að snjóa, veðrið var milt og litlaust. Ég sat með bekkjarsystrum mínum við saumavélarnar í handmenntatíma, mig minnir að við höfum verið að kynnast undrum Husqvarna vélarinnar. Það er bankað á hurðina þegar tíminn er rétt svo byrjaður. Ég sé aðstoðarskólastjórann í dyrunum og heyri nafn mitt nefnt. Hún lítur á mig og segir mér að koma með sér fram og taka dótið mitt með mér. Hjarta mitt fór að slá örar og hálfgerð hræðsla...