Ég reyki ekki, hef aldrei gert og nánast enginn af því fólki sem ég umgengst mest. En … mér finnst að ríkið eigi að hætta fjáraustri í reykingarvarnaráð, reyklaus.is og hvað þetta heitir allt. Þetta er löngu komið út fyrir öll skynsemismörk. Get varla stigið inn fyrir dyr á sund og íþróttastöðum afþví þessi skemmdu líffæra plaköt fara svo í pirrurnar á mér. Ef mér þætti ekki svona vont bragð af sígarettum mundi ég byrja að reykja, bara til að spæla þessa herskáu anti-reykingamenn.