Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

llllollll
llllollll Notandi frá fornöld 10 stig

Re: Coke vs Pepsi

í Tilveran fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Mig langar til að skora bæði Pepsi og Coke aðdáendur að kaupa t.d. eina hálfslítersflösku af hvorri tegund, láta síðan vin sinn hella þeim í sitthvort glasið án þess að þið sjáið hvort er hvað, og reyna síðan að þekkja tegundirnar í sundur blindandi (hafa drykkina jafn kalda). Tegundirnar eru það líkar að ég gæti trúað því að niðurstöðurnar yrðu nálægt 50/50. Kókið er einfaldlega með sterkara vörumerki, og vörumerkið ræður ótrúlega miklu um skoðanir fólks, EF það veit hvað það er að drekka....

Re: Kúveit: sjálfsagður hluti Íraks

í Deiglan fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ekki gleyma því sem spilar stóran þátt í aðgerðum og skoðunum Bush jr. Það er að Bush eldri hatar Saddam (hefur viðurkennt það opinberlega). Bush yngri er bara að hjálpa pabba við að ljúka því sem sá gamli byrjaði á en getur ekki klárað sjálfur, því að hann hefur ekki völdin til þess lengur. Ef Bush yngri væri sonur einhvers annars manns, þá efast ég stórlega um að hann væri jafn aggressífur gagnvart Saddam. Bush eldri er kominn á ellilaun og að mestu valdalaus, á meðan að erkióvinurinn er...

Re: Árni Johnsen :

í Deiglan fyrir 23 árum, 12 mánuðum
Bara eitt sem mig langar til að nefna; var það ekki Árni sem fyrir nokkrum árum var svo “duglegur” að hann greiddi atkvæði fyrir þingmanninn við hliðina á sér af því að sá var fjarstaddur? Og varðandi Árna sem þingmann: Hann hefur a.m.k. einu sinni verið útnefndur latasti þingmaðurinn af fjölmiðlum því að hann flutti fæstar ræður og eyddi stystum tíma niðri á þingi.

Re: HJÁLP! VÍRUS! HJÁLP!

í Windows fyrir 24 árum
Þú gætir prófað þetta: http://housecall.antivirus.com/housecall/start_corp.asp Þetta er ókeypis online virus scan. Ef þetta virkar ekki, þá gætirðu downloadað evaluation copy t.d. frá McAfee og hent því út þegar þú ert búinn að hreinsa. Hér er McAfee evaluation síðan: http://download.mcafee.com/eval/evaluate2.asp

Re: Ekki láta svindla á þér.

í Vélbúnaður fyrir 24 árum, 2 mánuðum
Rx7, ég sé að álit á mitt á þér er rétt. Þú hrópar eitthvað upp í loftið og kallar það rök, en þegar ég tel upp ástæður fyrir því að hlutir kosti eitthvað, þá segirðu að mín rök séu “ekki neitt”. Ég vinn ekki við að selja neitt, þannig að þú getur andað léttar. En ég nenni ekki að standa í endalausu rifrildi við einhvern sjálfskipaðan besserwisser, þannig að ég ætla að leyfa þér að eiga síðasta orðið. Rx7, þú dæmir þig sjálfur.

Re: Ekki láta svindla á þér.

í Vélbúnaður fyrir 24 árum, 2 mánuðum
Kæri Rx7. Ég hefði gaman af því að vita hvað þú ert gamall, aðallega út af tvennu. Í fyrsta lagi því þú hefur greinilega ekki vit á hvernig fyrirtæki yfirleitt eru rekin, og í öðru lagi þá þér finnst greinilega að fólk heimskt að vera ekki sammála þér. Þetta sýnir annað hvort ungan aldur eða þroskaleysi, eða hvorttveggja. Hugsaðu málið aðeins, t.d. hverjir kaupa tilbúnu tölvurnar? Þeir sem hafa ekki mikið vit á tölvum, þ.e.a.s. ömmur, afar og allir hinir sem vita ekki rassgat um tölvur....

Re: Ekki láta svindla á þér.

í Vélbúnaður fyrir 24 árum, 2 mánuðum
Rx7, mér finnst komin tími til að hugverjar hætti að tala um að þeir séu “teknir í þurrt kakóið” ef tölvubúðir gerast svo grófar að gera jafn sjálfsagðan hlut eins og að taka gjald fyrir að setja tölvuna þeirra saman. Þið hljótið að vita að fólk vinnur ekki ókeypis, hvorki í tölvubúðum né annars staðar. Mér þykir ólíklegt að þú værir til í að vinna kauplaust allan ársins hring við að setja saman tölvur. Ef ekki, þá værir fínt ef þú gætir fengið sjálfboðavinnu við afgreiðslu t.d. í...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok