Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: MSN VESEN!!

í Tilveran fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Já, þú segir að standi á bak við þetta…. en ég hélt að hann ætti að vera fulkominn, hvernig fór hann þá að því að búa til svona misheppnað stýrikerfi?

Re: frítt utanlands download ???

í Tilveran fyrir 21 árum, 5 mánuðum
ég trúi þessu þag ar ég sé tilkynningu frá öðru hvoru fyrirtækjanna, en VÁÁ MIG LANGAR Í FRÍTT UTANLANDSDL!!!! er reyndar hjá vodafone svo það er hálft gíg frítt á morgun…

Re: Hvenær á að endurskoða stjórnarskrána?

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 5 mánuðum
nei, ég minntist bara á það af því að þú tókst það sem dæmi…

Re: Hvenær á að endurskoða stjórnarskrána?

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Þetta með fjölmiðlalögin, Það ver nákvæmlega þetta sem gerðist á Ítalíu. Þar var einn maður sem átti nánast alla fjölmiðla í landinu, svo bauð hann sig fram sem forseta og vann (hvernig skyldu fjölmiðlarnir hafa fjallað um hann…) og þar með var hann kominn með ríkisfjölmiðlana líka. Þessi maður heitir Berlusconi.

Re: Friðargæsluliðar Íslands

í Tilveran fyrir 21 árum, 5 mánuðum
þvílíkir fávitar…

Re: Nintendo DS

í Leikjatölvur fyrir 21 árum, 5 mánuðum
ok, þá er þetta ALLT öðruvísi en myndin sem ég sá í einhverju norsku tölvublaði í sumar…

Re: Verkfalli kennara frestað

í Skóli fyrir 21 árum, 5 mánuðum
jújú. Mikið rétt, mikið rétt…

Re: Verkfalli kennara frestað

í Skóli fyrir 21 árum, 5 mánuðum
jújú. mikið rétt. Litla frænka mín kom frá Danmörku í haust til ða vera í skóla hérna í ár (7.bekk), og var búin að vera í mánuð þegar verkfallið kom, fór þegar það var búið að vera í tvær, þrjár vikur, og hún á að koma núna næsta miðvikudag svo ég vona allavega að þetta leysist… frekar fúlt fyrir hana.

Re: Færslugjöld debetkorta...

í Fjármál og viðskipti fyrir 21 árum, 5 mánuðum
þú getur beðið staffið um að bakfæra það, þá reiknast ekki auka færslugjald.

Re: Nyji Zelda leikurinn

í Leikjatölvur fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Nei! Nei! Nei! Nei!!!!! ég sem var búinn að gleyma honum, þurftir þú nú að minna mig á hann….nú get ég ekki beðið… ;)

Re: Nintendo DS

í Leikjatölvur fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Á NDS að vera svona eins og myndin þarna sýnir? og er snertiskjár á henni?

Re: Verkfalli kennara frestað

í Skóli fyrir 21 árum, 5 mánuðum
hei, þetta ert þú… merkilegt….

Re: Verkfalli kennara frestað

í Skóli fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ég held að hún verði felld. Kennarar virðast haldnir þeirri ranghugmynd að því lengur sem þeir séu í verkfalli því hærri séu sanngjarnar launahækkanir.

Re: Jól í október?

í Tilveran fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Haltu bara upp á áramótin snemma og úps nokkrir flugeldar kveiktu í trénu, æ æ fyrirgefðu… ;)

Re: staðreyndir um ímynd kvenna

í Tíska & útlit fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Það sem ég er að meina er það að fyrir sumar konur er alveg hægt að vera með sama mittismál og Barbie, þó svo það sé alls ekki gott vera eitthvað að reyna það ef þú getur það ekki og mér persónulega finnst það alls ekki aðlaðandi, en það þýðir þó ekki að það sé ekki hægt. Það er raunverulega mitt argument í þessu máli, þar sem ég reyni alltaf ef ég nenni að hrekja allt sem ég sé í svona listum og mér finnst ekki trúverðugt…

Re: staðreyndir um ímynd kvenna

í Tíska & útlit fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ég gáði að þessu núna áðan og hlutföllin á barbie eru alveg þau sömu og á 3 manneskjum sem ég mældi. Ég tel mig nú hafa formlega hrakið þessa vitleysu og ég mana þig til að prófa.

Re: staðreyndir um ímynd kvenna

í Tíska & útlit fyrir 21 árum, 5 mánuðum
ég á nú eftir að sjá það að hún myndi nota skóstærð 28…

Re: staðreyndir um ímynd kvenna

í Tíska & útlit fyrir 21 árum, 5 mánuðum
ég man ekki hvað heimsmetið er, en ef barbie væri 180cm á hæð, hvert væri þá ummál mittisins? Ég er 100% viss um það sem ég er að segja.

Re: Bréfið

í Húmor fyrir 21 árum, 5 mánuðum
jújú…. en mér finnst nú að málfarsvillur eigi ekki að hafa nein áhrif á greinarnar hér á bröndurum fyrst þær gera það ekki annars staða

Re: Bréfið

í Húmor fyrir 21 árum, 5 mánuðum
who cares þó brandarinn sé gamall. ca. 70% af bröndurum sem fólk heyrir eru eldgamlir, þó þeir hafi kannski breyst örlítið í takt við tímann. Það sem skiptir máli í þessu tilviki er það að þessi brandari kom hingað inn fyrir örskömmu síðan og því hefði alveg mátt hafna honum á þeirri forsendu…

Re: staðreyndir um ímynd kvenna

í Tíska & útlit fyrir 21 árum, 5 mánuðum
vegna þess að margar konur hafa í gengum tíðina lagt ýmislegt á sig til að fá svona mjótt mitti og tekist það og þær hafa getað gengið á eftir, svo að þessi staðhæfing er algjörlega úr lausu lofti gripin. Það er nú reyndar svo að ef þú lest einhvern dálk sem hefst á orðunum “Vissir þú að…” eða eitthvað álíka þá geturðu verið 90% viss um að meirihlutinn af því sem á eftir fer sé helbert kjaftæði nema það birtist í þeim mun virtari miðli.

Re: ALDURS TAKMÖRK ! :@:@:@:@

í Battlefield fyrir 21 árum, 5 mánuðum
jú sjáðu til, ef þú ert ekki orðinn 16 þá ertu alltof ungur til að vera að spila svona ofbeldisfulla leiki…. ;)

Re: staðreyndir um ímynd kvenna

í Tíska & útlit fyrir 21 árum, 5 mánuðum
ok ég veit kannski ekki mikið um þetta en þegar ég var kominn hingað þá hætti ég að lesa: …að ef Barbie væri alvöru kona væri hún svo vansköpuð að hún yrði að ganga á fjórum fótum? þetta er bara kjaftæði. Ég er ekki að segja að þetta allt sé bull, en allavega þetta en ég fór ekki lengra…

Re: Kárahnjúkavirkjunin

í Tilveran fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Það eru nú alveg helvíti flott svæði þarna á köflum að minnsta kosti. synd að sjá á eftir því. En svo eru allir að tala um að þetta verði bara fallegt uppistöðulón þarna og hin mesta prýði af því….. ….já í svona 1 mánuð á ári, alla hina verða þetta endalausar leireirur sem gera ekki annað en að fjúka út um allt, og eftir einhverja áratugi verður lónið orðið fullt og engin not af því lengur….

Re: LOL

í Tilveran fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Nákvæmlega. Einn gaur sem ég þekki segir alltaf bara LOL þegar allir aðrir eru að fá krampakast úr hlátri. Einstaka sinnum breytir hann útaf vananum og segir ROFL….
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok