Ég er lesblindur og skammast mín fyrir það þó ég veit að ég eigi ekki að gera það og ég reyni að halda því leyndu. Í námi þarf ég að leggja rosalega hart að mér og eyða mun meiri tíma í að læra en flest allir. Þetta á ekki bara við um stafsetningu heldur líka tungumál og þar sem maður þarf að lesa eitthvað. En ég hef reynt að laga það með því að fara í auka tíma og svo hef ég líka fengið hljóðbækur frá blindrabókasafninu sem hafa reynst mér mjög vel og hvet ég alla sem eru lesblindir að fá...