Kræst! Það er einhver Woody Allen mynd á Skjá Einum (eða mér sýnist það), veit ekki alveg um hvað hún er en áðan var svona þáttur í henni “What's Your Pervertion” og þá kom fólk og var að segja frá hvernig það er afbrýðilegt..

Svo var þarna einhver vísindamaður sem var að rannsaka kynlíf og var búinn að láta konu borða sílíkon í ár og hún var komin með risa brjóst. Svo sprakk öll rannsóknastofan og annað brjóstið varð HUGE og fór að ráðast á fólk.. Það svona “labbaði” bara út um allt. Síðan kom löggan með risa brjóstarhadlara og fangaði brjóstið!

Svo núna rétt áðan þá var svona kynlífsrannsóknarstofa sem hafði það að markmiði að fá konur til að stunda kynlíf með einhverju sem mér sýndist vera vél. Þá sendu þeir út allskonar skipanir um að snerta brjóst og fá stinningu á liminn og eitthvað og Woody Allen var sáðfruma sem var hrædd við að fara út af því að hann hafði heyrt að konur tækju pillur og strákar notuðu “eitthvað gúmmí dót”.



Aðra eins vitleysu hef ég ekki séð áður! jesús þetta er sko klikkun! Svolítið fyndið eitthvað en þetta er svo súrt ég bara næ þessu ekki!