Alveg er ég hjartanlega sammála þessum dómi. Portishead er ein af mínum uppáhaldshljómsveitum og þegar ég frétti að Beth Gibbons væri að gefa út sólóplötu fékk ég alveg í magann af eftirvæntingu. Ég gerði mér miklar væntingar og í stuttu máli þá stenst þessi plata allar þær væntingar…og meira! Beth er ein allra besta söngkona sem uppi er í dag og hvernig hún nær að túlka lög og ná fram mismunandi tilfinningu er ótrúlegt, gæsahúð og aftur gæsahúð! Mysteries er mitt uppáhaldslag, hef bara ekki...