Nú er farin að koma smá reynsla á þetta. Mér finnst t.d. skárra að hafa dálkinn um föt, heldur en ekki. Ég held að það gæti verið dáldið gaman að hafa líka dálk um sambönd, þá meina ég um ást, vináttu og þess háttar. Það væri alla vega eitthvað sem allir ættu að geta tjáð sig um, ekki satt? Hvað finnst ykkur, eigum við að koma því í gang?