Mín reynsla af Alpine er ekki góð, það er svoleiðis tæki í Golf sem ég er mikið á og það þarf rétt smá holu til að það hiksti. Auk þess þá er það hrikalegt í allri notkun, leiðinlegir takkar og bara yfirhöfuð flókið tæki. Sjálfur er ég með JVC í mínum jeppa og það hikstar mjög sjaldan, bara þegar ég er búinn að hoppa og skoppa í nokkrar mínútur. Það er líka mikið þægilegra í allri notkun.