Ef ég fengi kassa af kjúklingum og það væri einn fugl með salmonelluveiruna, þá myndi ég ekki borða hina kjúklingana. En annars er ég sammála þér, að mestu leyti
Evans var nú harla vísindalegur þegar hann ákvað að ‘endurbyggja’ suma hluti hallarinnar… skemmdi helling og hélt þessu engan veginn í sínu upprunalega ástandi
Ég hefði hætt að lesa þessa emo sögu þegar að skurðunum kom, hefði ég ekki vitað að það yrði eitthvað sæmilegt úr þessu, þar sem að ég hef lesið aðrar sögur eftir þig.
Það sem maður sér í trailernum úr Apocalypto er töff. Mjög líklega Aztekar eða Mayar í Mexíkódal. Myndi segja Aztekar frekar útaf þessum mannfórnum sem eru gefnar í skyn. Þetta gæti svo sem verið einhver annar þjóðflokkur í Suður-Ameríku, erfitt að álykta.
Já, mér er reyndar skítsama hvort að það sé íslenskur server eða ekki. Ég lagga ekkert á erlendum og get spilað að vild. Síðan eru íslenskir serverar, eins og það sé bara einhver regla, annaðhvort tómir eða fullir, enginn millivegur.
Ég ætla að byrja á því að segja hvað mér finnst orðið goth fáránlegt orð yfir hóp sem klæðir sig í svört föt og notar of mikinn augnskugga. Hvað veist ÞÚ um hvað aðrir ‘gotharar’ gera? Þú ert að alhæfa um aðra ‘gothara.’ Hvernig veistu ekki nema það séu aðrir ‘gotharar’ á ferli sem eru virkilega að gera illa hluti? Eða hvað? Gotharar eru bara að lifa sínu lífi, þeir eru bara fólk… Fólk gerir aldrei illa hluti, er það nokkuð?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..