Mig langaði til að deila með ykkur uppskrift að samloku sem ég sá í þætti sem heitir Nigella bites. Hún er þannig: Hráefni: 1 buff mozzarella Franskbrauð Ólívuolía (ekki extra virgin - of bragðsterk) 2 egg Hveiti Mjólk Þú skerð niður buff mozzarella í sneiðar og svo í strimla. Þú skorpuskerð franskbrauðið. Hefur egg í einum disk, hveiti í þeim næsta og mjólkina í þeim síðasta. Setur ostinn á milli brauðsneiðanna og klemmir kantana vel saman. Veltir samlokunni síðan upp úr egginu, síðan upp...