Þetta er auglýsing frá þýska IKEA. Pointið er að gera grín að ‘midsommar’ sem að er hátíð sem að svíar halda upp á á sumrin, þetta er svona eins og hvítasunnan og sautjánda júni rúllað saman í einn pakka. Auglýsingarnar eru réttar að því leyti að það er oft mikið drukkið og það er einnig siður að dansa i kringum stöng og syngja lítið lag um froska. Það sem að fer í taugarnar á svíunum er að þeim finnst þetta full ýkt og svo er það líka ljótt að gera grín að midsommar, hálfgerð helgispjöll....