Ég hef reyndar aldrei notað vsftp og því las ég ekki yfir config skránna þína. Ég rak þó augun í eitt. Skelin fyrir notandann getur líklega verið vandamálið hjá þér, nema Hugi hafi fokkað upp peistinu hjá þér. Þessi skel: “/sbin/no login” er alveg pottþétt ekki til. :-) Ef þetta er rétt skel, lagaðu hana þá fyrir notandann með “vipw” og tjékkaðu svo hvort skelin sé ekki örugglega í /etc/shells, ef skelin er ekki þar þá getur hann ekki loggað sig inn. Gangi þér vel, vona að þetta hjálpi þér eitthvað.