Sæl. Notkun á fuglasandi er umdeild. Fuglar borða sand (jarðveg) úti í náttúrunni til þess að hreinsa meltingakerfið af óþarfa sem þeir hafa étið, eitthvað sem er tormelt eða eitrað. Þegar fuglar eru haldnir sem gæludýr eru þeir aldir á korni,pellets, ávöxtum og grænmet, sem er allt auðmelt og því engin ástæða til að vera að gefa sand með fóðri. Ég þekki fleiri en eitt dæmi hérlendis þar sem fuglar hafa beinlínis dáið vegna fuglasands. Þeir hafa fengið áráttu fyrir að éta hann, étið í svo...