Saga Mesópótamíu hófst með menningu súmera, sem komu frá hálendissvæðum Íran og Norður-Anatólíu í kringum 3000 f.Kr. Tvö konungsdæmi, Sumer og Akkad, sameinuðust um 2350 f.Kr. undir stjórn Sargon frá Akkad. Í kringum 2000 f.Kr. tóku amorítar við völdum. Hammurabi, konungur þeirra gerði Babýlon að frægri borg, en kunnastur er hann fyrir lagabálkinn, sem ber nafn hans. Að honum látnum gerðu hittítar árásir á landið og síðar kassítar, sem stofnuðu konungsríkið Assýríu í kringum 1350 f.Kr....