Ef þú ert að lenda í vandræðum með að allt of mikið myrkur, þá skaltu hækka aðeins Gamma'ð í leiknum. Ekki hækka það samt meira en bara svona rétt aðeins til að geta greint þitt nánasta umhverfi. Thrymill, Dwarven resident on Torvonnilous ps. hmmm … president of Torvonnilous, hefði hljómað betur :)
Ég myndi giska á rúmlega 200-300 án þess að hafa nein haldbær rök fyrir því. Málið er að Myndform er ekki búið að vera með umboðið allan tíman á EQ, en ég held að þeir séu búnir að selja ca. 80-100 stk. af Ruins of Kunark. Ég keypti til að mynda minn pakka áður en Ruins of Kunark pakkinn kom út. ADMiral Mundi
Þú getur alveg kópíerað diskinn, hinsvegar fylgir honum kóði sem þú notar þegar þú skráir þig online. Þessi online kóði er í raun lykilinn inn til að stofna account hjá Verant, og til þess að stofna accountinn þarftu kreditkort. Ég held að það sé nánast útilokað að spila með stolið eintak af EverQuest. Mbk, ADMiral Mundi
Úbs :) … ég hringdi bara í skiptiborð Skífunnar og fékk samband við aðila sem sagði mér að þeir ættu 3 eintök, en ekki hvar þeir ættu þessi 3 eintök :) ADMiral Mundi
Esc … segjum sem svo að Star Trek yrði fært fyrir, eða eftir beina útsendingu. Væri þá réttlátt að skemma fyrir þeim sem eiga þætti á þeim tíma, líklega barnatímar. Ég veit ekki betur en að foreldrar þessara barna sem missa af barnatímanum séu einnig að borga afnotagjöld. …bara smá punktur! ADMiral Mundi
Hver skrifaði aftur grein um það að handritið að B5 hafi flakkað á milli stúdíóa í Bandaríkjunum í kringum 1988-89? Þættirnir fóru samt ekki í framleiðslu fyrr en 1992-93. Þannig að það hefur ekki verið erfitt fyrir menn að fá hugmyndir úr handriti B5 fyrir DS9. Þeir höfðu semsagt 4 ár til að búa til sína eigin útgáfu af B5 :) Þetta er bara skemmtileg pæling! Þrátt fyrir að vera harðhausa trekkari, vil ég samt benda fólki á að gefa B5 séns. B5 er nefnilega eitt af meistaraverkum SCI-FI...
Nah … maður verður ekkert hooked á EQ! Til að mynda ætlaði ég að rétt aðeins að kíkja inn í klukkutíma í gærkvöldi, milli 23-00. Þegar klukkan var að nálgast 04, þá fór maður að íhuga hvort að ekki væri rétt að grípa smá svefn fyrir vinnuna. Það var bara svo helvíti gaman að safna saman smá pening fyrir nýju armori og nýju vopni :) Kv, Thrymill the Goblingutte
Ég held að punkturinn er sá að þetta er ekki í fyrsta skipti sem þetta gerist, og ekki það síðasta. Málið er bara það að í hvert einasta skipti sem þetta gerist, þá er byrjað að væla hér í greinum og á korkinum. Staðan í dag er þannig að tíminn á sunnudögum hefur sína kosti og galla. Kosturinn er að flestir geta horft á þá klukkan 17 á sunnudögum, og er þetta líklega einn besti tími sem nokkur sjónvarpsþáttur gæti verið sýndur á. Ókosturinn er sá að beinar útsendingar frá íþróttaatburðum...
Maður þorir varla að svara þessari spurningu :) Qualdaar, High Elf Wizard, lvl 9. Thrymill, Dwarven Warrior, lvl 9. Þeir eru báðir inni á Torvonnilous. Kv, ADMiral Mundi
Væri ekki einfaldara að sleppa því að svara spurningu sem þú veist hvort eð er ekki svar við, í stað þess að vera með þessi leiðinda svör og neikvæðni? ADMiral Mundi
Ég bjallaði í ELKO, og þeir eiga 5-6 stk. af EverQuest: Ruins of Kunark. Ég gleymdi náttúrulega að spyrjast fyrir um prísinn á honum :) Mbk, ADMiral Mundi
Þetta er leikur sem ekki er seldur í eins mörgum eintökum og Quake og Half-Life, en krefst mun meiri viðhalds vegna stærðar sinnar. Það eru aðilar sem halda utan um serverana og síðan er verið að bæta inn nýjungum inn reglulega. Þannig að $8 er ekkert til að gráta yfir. Mbk, ADMiral Mundi
Þetta er vinsælasti massive-multiplayer online leikurinn í dag, og undanfarið ár. Hann er búinn að vera á markaðnum í ca. 2 ár, og eru komnar út 2 viðbætur við hann (Ruins of Kunark og Scars of Velious). <a href="http://www.everquest.com">www.everquest.com</a> Mbk, ADMiral Mundi
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..