Það er frábært, að þú sért loksins að verða pabbi:) En ég er sammála um það, að það vanti lesefni fyrir verðandi pabba, en ég hugsa að það sé mjög einföld skýring á því! Hún er sú að pabbarnir hafa alltaf verið útundan í umræðunni um barneignir, nema að getnaði undanskyldum. Það er eins og við konurnar höfum ekki haft neina þörf fyrir ykkur karlmennina, nema við getnaðinn(samkvæmt bókunum) en nú er risið nýtt árþúsund og aldarmótin að ganga í garð, og þessu verður bara að breyta og það...