Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

hotbutter
hotbutter Notandi frá fornöld 70 stig

Re: listaspjall

í Bókmenntir og listir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þið eruð ÖLL að misskilja mig, það sem ég á við er það að listin eru viðbrögð mannsins við því hversu lítið hann hefur við náttúruna og sinn innri mann/konu, því er listin hluti af náttúrunni, og leit mannsins að náttúrunni sem hann hefur sjálfur svipt sig. ramax segir að það sem dýrin séu að gera sé ekki list, þar er ég reyndar ósammála, hins vegar tel ég að maðurinn sé ekki alveg á sama þróunarstigi og dýrin (þ.e.a.s. að sumu leiti lengra kominn en hefur einnig tapað ýmsum eiginleikum...

Re: listaspjall

í Bókmenntir og listir fyrir 23 árum, 1 mánuði
ha?

Re: listaspjall

í Bókmenntir og listir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Það er augljóst að þú misskilur hana hokeypokey, það sem hún á augljóslega við er það að fólk sem að nálgast myndlistina með hætti arkitektsins getur aldrei framleitt myndlist, heldur aðeins búið eitthvað til, á meðan að þeir sem að nálgast myndlistina sem tjáningu eru þeir sem að ná hæstu hæðum í myndlistinni. Varðandi tungumál, þá er ljóst að tungumál deyja ekki út þrátt fyrir að fólk deyji, ég hef ekki resið hina rómuðu “fifties” ritgerð Jaques, en hinsvegar hef ég lesið mikið af efni...

Re: listaspjall

í Bókmenntir og listir fyrir 23 árum, 1 mánuði
loksins, rödd skynseminar!

Re: listaspjall

í Bókmenntir og listir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Það sem ramax skrifaði hérna á undan er sannleikur, það sem hann er að segja er að listin sé allt annað en dauð, því að listin er tungumál, og tungumál er aldrei útdautt fyrr en þeir sem tala það eru allir látnir og gleymdir. Og jafnvel þá eru alltaf einhverjir sem að reyna að púsla því saman og rannsaka hvernig það var talað, og á ný munu aðrir sem ganga um jörðina tala hið “útdauða” tungumál. Já, listin mun ekki deyja fyrr en við listamennirnir eru allir, en ég mun gera allt sem í mínu...

Re: listaspjall

í Bókmenntir og listir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Mér sárnar mikið að heyra þig segja að ég og villutrúarmaðurinn, níhilistinn og “myndlistartæknirinn” Renault eigum nokkurn skapaðann hlut sameiginlegann, hefurðu ekki lesið umræðurnar sem hér hafa átt sér stað??? Þetta er ekki spurning um að þekkja einhverja listamenn eða spekinga, heldur um að vera í sambandi við tilfinningar sínar og sinn innri mann eða konu. Ég fæ ekki betur séð en að þessar umræður hafi verið á málefnalegum nótum, og ef einhver hefur verið að ata fólk auri, þá er það...

Re: listaspjall

í Bókmenntir og listir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Haltu þig utan þessarar umræðu ef þú hefur ekkert gáfulegra að segja, eins og spekingarnir segja : “glymur hæst í tómri tunnu”.

Re: listaspjall

í Bókmenntir og listir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Gat nú verið! Alveg vissi ég að þú værir einhver ungur listamaður í mótþróa við listasöguna, og þér eldri og virtari listamenn. Hvernig í ósköpunum dettur þér í hug að þú sért verðugur arftaki galos??? Ég skal viðurkenna að ég þekki ekki umrætt verkefni Galos en ég er ALVEG viss um að þú ert ekki hinn rétti maður í starfið! Nú verð ég að segja að leiðin sem þú hefur valið sem farveg nýlistarinnar er svo kolröng að varla verður orðum að komið! Að tala um væmnislist og vera samt harður...

Re: listaspjall

í Bókmenntir og listir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Nei, það er einmitt þú sem að ert að mistúlka Jaques B, allir vita að honum og Galo kom ekki saman, og því svaraði Jaques á þennan hátt. Það sem þú segir er einfaldlega EKKI rétt! Að taka sig úr sambandi við fortíðina er eitthvað sem að enginn má gera, og samtíminn, já, ég get fullyrt það að á síðustu 5 árum hefur enginn góður listamaður komið fram á sjónarsviðið. Ég sé að þú ert að “reyna” að smíða “list” á sama hátt og Michael Mandiberg gerir, en ég er ansi hræddur um að þú sért að...

Re: listaspjall

í Bókmenntir og listir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Tilfinningar þurfa ekki endilega að vera væmnar, það ert frekar þú sem þarft að horfa á Guiding Light því að þú átt greinilega eitthvað bágt með að tjá tilfinningar, en þó ertu “listamaður”, eða það merki ég af orðum þínum, þar sem þú segist vera “myndlistatæknir”. Hvernig geturðu framleitt nokkra myndlist án þess að tjá þig? Myndlist fortíðarinnar á að sumu leiti enn erindi við fólk samtímans, hinn tilfinningadaufa nútímamann, sem heyrir ekki hin raunverulegu hljóð náttúrunnar og verður...

Re: listaspjall

í Bókmenntir og listir fyrir 23 árum, 1 mánuði
HEYRÐU NÚ MIG! List hefur stoðferli en er þó breyta, listin er ekki ástand handan rökfæðilegrar skýringa frekar en hún er handa physiskrar skynjunar!!! Listin er einmitt rökfræði (meðal annars), listin er ekki handan tungumálsins né tilfinningana, heldur er listin einmitt tjáning tilfinninga listamannsins, eða sett saman eftir “rökfræðikerfi” sem að oftast byggist á hinum raunverulegu viðmiðum listamannsins, en listamaðurinn hefur að sjálfsögðu leyfi til þess að nota aðrar tegundir rökfræði,...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok