Ég er alveg sammála þér GlingGlo, ég á 1 strák sem að verður 3 ára í janúar n.k. Ég og maðurinn minn höfum alltaf lesið mikið fyrir hann og núna, þá er það alveg áberandi hvað það skilar sér vel. Hann talar mjög skýrt og er með mikinn orðaforða. Og ég held að þeim finnist líka alveg hrikalega notalegt að sitja með mömmu eða pabba og lesa sæta bók. Fyrir utan það hvað það gefur manni sjálfum..:o)