Nákvæmlega það sama og Praise segir. Ef maður er undir átján árum eru ekki miklar líkur á því að þú hafir mikla reynslu af flúrum eða götum þar sem það er aldurinn sem þú verður að hafa náð til að stunda þennan lífsstíl. ( í flestum tilvikum allaveganna ) Stjórnandi á þessu áhugamáli verður, að mínu mati, hafa eitthvað vit á því hvað hann er að segja og þar af leiðandi hafa reynslu af því að fá sér flúr og/eða göt. Vonandi svarar þetta einhverju. Góðar stundir.