Mig langar svolítið til að fá að vita hvernig fólk túlkar þessa sögu. Hef fengið svolítið af “Hvað í heilögum andskota er að gerast, á ég að skilja þetta??” frá vinum mínum.
Já, ég ætlaði nú að gera þetta betur en eins og sést á þó nokkrum stöðum í sögunni þá var ég svolítið að flýta mér. Til að mynda endirinn, ég hafði bara ekki tíma að að finna upp á almennilegum endi.
Þetta átti nú að vera svona hljóðlát (silent) myndasaga, textinn var nú bara eitthvað sem ég gerði fyrir mig þegar ég var að teikna þetta. Svo fór þetta nú bara út í rugl, það var skilafrestur á þessu og ég var að flýta mér að klára söguna.
Þar sem þú hefur æft Capoeira, hvernig eru æfingarnar? Ég hef lesið á netinu að fólk standi í hring (roda) og inní hringnum eru tveir gaurar sem eru að capoeirast í takt við tónlist. Þetta er kannski bara hvernig þeir leika sér með þetta.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..