Að ógleymdum möguleikunum á að sjá hvað aðrir eru að merkja og leika sér með síðurnar á ýmsan hátt, t.d. að setja lista yfir nýlesnar síður á bloggið sitt og fleira í þeim dúr. Bókamerkin eru líka þeim ókostum búin að þau eru föst á viðkomandi tölvu, meðan Spurlið er aðgengilegt yfir Vefinn. Mér hefur sýnst notendur Spurlsins merkja talsvert miklu meira en maður getur ímyndað sér að fólk setji í bókamerkin, svona að öllu jöfnu - þó að ég hafi ekki rekist á neina tölfræði um hið síðarnefnda.