Ég er sammála því að löggur geta verið algjörir hálfvitar þegar kemur að dýrum. Ég man eftir að það var einu sinni máfur á vappi í garðinum hjá okkur, ég hef verið svona 7 eða 8 ára. Það var eins og hann væri vængbrotinn og var eitthvað að segja mömmu frá að ég ætlaði að vera góð við þennan fugl því hann átti bátt. Svo þegar ég var búin að nuða nóg í mömmu til að fara út og ná í fuglinn til að fara með hann til læknis sáum við tvær löggur standa yfir honum og vera að setja hann spriklandi í...