Það eru flestir að væla yfir hvað friends séu ornir slappir og ekki fyndnir og að Chandler sé orðinn leiðinlegur og ófyndinn eftir að hann byrjaði með Monicu. Og að Ross sé viðbjóður og Joey ekki eins fyndinn og áður, og Rachel sé bara plain leiðinleg og Phoepe sé vitlaus…
Hvað meiniði?!?
Mér finnst Friends bara mjög skemmtilegir.
Auðvitað eru þættirnir misjafnir eins og í flestum öðrum þáttum en á heildina litið eru þeir bara mjög fínir.
Þegar þeir voru að byrja og fyrsti og annar þátturinn voru búnir að koma í sjónvarpinu las ég hér á huga greinar um hvað þeir væru nú leiðinlegir osvfr… svo þegar ég horfði á næsta þátt reyndi ég virkilega að pæla í því hvort þeir væru eitthvað verri en nei ég gat ekki séð það…sorrý :)

Kannski er ég bara heppin að finnast þeir ennþá fyndnir því að ég hlakka til að horfa á þættina mína á laugardagskvöldum.

Friends fan no.1!
lakkris