Vegna fjölda áskorana frá fólki, þar með talið frá starfsmönnum staðarins um að endurskoða stöðu mína á hinum aldargamla og ódrepandi Hressó. Þá hef ég ákveðið að gefa honum annan séns. Það verður samt ekki horft fram hjá því að vinkona mín var að vinna þarna og fékk aldrei borgað, og síðustu 2 skipti sem ég hef komið sá ég ekkert nema slagsmál, ókurteisi og lélega þjónustu, ógeðsleg klósett og bara subbugang í hverju horni. Ég er sem sagt tilbúinn að núlla þetta allt út og droppa þarna inn...