Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

hh1
hh1 Notandi frá fornöld 0 stig

Re: Lögverndun

í Forritun fyrir 24 árum
Nám til B.Sc. gráðu í tölvunarfræði hófst í Háskólanum á Akureyri haustið 2001. Það er varla hægt að fullyrða strax að það sé sambærilegt við tölvunarfræðinám í HÍ og HR. (sjá http://www.unak.is/template1.asp?PageID=31) Ég var ekki að reyna að gera lítið úr tölvunarfræðináminu á Akureyri, heldur að benda á að það geti verið erfitt að ákveða hvaða kröfur eigi að gera til þeirra sem vilja kalla sig Tölvunarfræðinga. Það væri t.d. mjög slæmt ef Háskólinn á Akureyri útskrifaði fólk með B.Sc. í...

Re: Lögverndun

í Forritun fyrir 24 árum
Þessi færsla tölvunarfræðinnar yfir í Verkfræðideild hefur ekkert með það að gera hvort HÍ telji tölvunarfræði vera raunvísindi. Það eru ýmsar “hagkvæmnis/pólitískar ástæður” fyrir flutningum. Þeir sem útskrifast með MS gráðu úr tölvunarfræði fá ekki titilinn Verkfræðingur, heldur bara Tölvunarfræðingur með Meistaragráðu. Til dæmis er sjúkraþjálfun í Læknadeild í HÍ, en útskrifaðir sjúkraþjálfarar fá ekki titilinn Læknir, þannig að þetta er ekkert einsdæmi innan HÍ. Í sambandi við upphaflegu...

Re: Og mjög mikilvæg spurning

í Skóli fyrir 25 árum, 1 mánuði
Þau eru sérhönnuð til að skilja hafrana frá sauðunum!

Re: Og mjög mikilvæg spurning

í Skóli fyrir 25 árum, 1 mánuði
Takk fyrir ábendinguna um þessa gömlu kynningarsíðu. Við lögum hana. Ég veit hvort námsráðgjafarnir hafa rangar upplýsingar, en sjálfsagt eru þeir bara að reyna að stýra fólki í skynsamlega átt miðað við undirbúning þess og áhugasvið. Ég skal athuga málið. Já, með tungutæknina. Það gengur hálf brösulega með hana. Planið er að þetta verði á Masterstigi og að það verði hýst innan Íslenskuskorar, en að tölvunarfræðin, rafmagnsverkfræðin, Orðabók HÍ og ýmsir fleiri aðilar komi þarna að líka. Það...

Re: HR, HÍ

í Skóli fyrir 25 árum, 1 mánuði
Ahem… Ég þarf ekki að trúa þér, því ég veit betur. Ég er kennari í Tölvunarfræðinni í HÍ. Eftir að tölvunarfræðin fluttist yfir í Verkfræðideild þá eru ENGAR TAKMARKANIR á innritun. Seinni klausan sem þú bendir á er gömul, frá þeim tíma sem tölvunarfræðin var í Raunvísindadeild. (Það væri ágætt að fá að vita hvar hún er, svo við getum kippt henni út). Þetta þýðir þó ekki að ráðlegt sé fyrir Máladeildarstúdent, sem hatar stærðfræði, að fara í tölvunarfræði, en honum/henni er þó frjálst að...

Re: HR, HÍ

í Skóli fyrir 25 árum, 1 mánuði
Tölvunarfræði fluttist í Verkfræðideild HÍ í byrjun september 2000. Verkfræðideild gerir ekki kröfu um neinar einingar í stærðfræði eða eðlisfræði (sjá t.d. http://verk.hi.is/kynning/umd.htm). Raunvísindadeild gerir hins vegar kröfu um að nemendur hafi stúdentspróf af eðlisfræði eða náttúrufræðibraut. Á meðan tölvunarfræðin var í Raunvísindadeild þá féll hún undir þetta skilyrði, en frá síðasta vetri eru engin inngönguskilyrði í nám í tölvunarfræði við HÍ. Nemendum er þó oft ráðlagt að taka...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok