Það væri kannski ágætt að lónsera hana með beisli og rennitaum….. það ætti að láta hana verða næmari í munninum og hlýða beygjum betur, það getur verið að hún finni aðeins til þegar beygt er ef það þarf mikið til og þess vegna fer hún að finna minna til þegar hún verður næmari og það þarf ekki að vera harður við hana…… annars er ég afar sammála regi og tannbursta…..
Já ég stend nú yfirleitt í miðjum hringnum, en hann bakkar til mín þangað….. en já takk, hann er náttla að jafna sig, hann var spattaður, kannski var það bara það og kannski verður hann betri núna…….
já nákvæmlega…. reyndar er smalamennskan ekki mikið mál hér…. þetta eru bara myrarnar hérna við Hvolsvöll og kindur bara frá nokkrum manneskjum…… mig langar stundum alveg ótrúlega að fara svona á fjall og svoleiðis….
Ég er reyndar líka farin að gera aðrar æfingar eins og að færa aðra löppina yfir makkann og sitja á hlið…. og líka að fara á hnén ofan á hestinum og ýmislegt svoleiðis…… auðvitað bara á besta barnahestinum okkar sem er vanur öllu…… en já….. ég var bara að lesa þetta í dag…. ég hef verið að reyna að nota getið mitt í dag til að bæta netsamfélaginu upp fjarveru mína í sumar með því að blogga og soleiðis……
Ég var einu sinni geggt óörugg á baki og var alltaf að detta af baki bara af því ég gat ekki andskotast til að fylgja hestinum eftir en ég einmitt fór að prófa að fara berbakt á bak og líka bara að læsa hnjánum og solleiðis en það er alveg svakalega mikilvægt að hafa gott jafnvægi……
Veðrið hefur mikil áhrif á hross….. t.d. þá finna hrossin veðrið koma og eru oft komin í stellingar til verndar vindum áður en vonda veðrið kemur….. ætli það sé ekki mismunandi eftir hestum samt hvernig þeir bregðast við veðrinu, t.d. þá eru sumir hestarnir mínir miklu viljugari í roki en logni……. veit ekki hvernig þetta getur verið að hafa áhrif á hryssuna þína en það er eðlilegt að það sé að hafa einvher áhrif…..
Já nákvæmlega…… það tekur mig svona korter að labba í hesthúsið mitt þannig að ég kemst hvenær sem ég vil en til að komast á alvöru keppnisvöll til að æfa mig verð ég að ferðast 12 km…… ég væri ótrúlega til í að búa bara á stórum búgarði með öllu tilheyrandi…..
hehe…. jámmm….. en það var nú allt í lagi þegar hvergerðingar fóru að hafa karlrembuhlaup afþví að það voru kvennahlaup….. svo ég held að við kerlingarnar myndu glaðar senda kallana okkar í reiðtúr án þess að fara með….. og kallarnir gætu gert hvað sem þeir vildu án þess að kellingarnar væru eikkað að skipta sér af…… þeir gætu þessvegan stoppað í hálftíma við hvert hlið og látið pelana ganga marga, marga hringi eins og ég er viss um að þeir vilja og þyrftu ekki að hafa áhyggjur af einhverjum...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..