Jæja nú er að koma að kvennareið og þær sem hafa farið í svoleiðis vita nú hvað það er skemmtilegt og hvað reiðtúrarnir geta orðið rosalega skemmtilegir :P

Allavega….. langaði soldið að vita hvort einhverjar hérna ætla eða eru búnar að fara í kvennareiðtúr, ég myndi spyrja strákana en…….

Ég hlakka alveg geggjað til, ég fer með mömmu minni sem ég hitti nú ekkert alltof oft því hún býr í öðru sveitafélagi og það á eftir að vera geðveikt gaman……..

Það verður riðið út að Strönd, sem er golfvöllur en við ætlum því miður ekki að fara að spila golf heldur verður borðaður dýrindis kvöldmatur þar :) Þar verða náttla líka vínveitingar svo þá vitiði afhverju reiðtúrinn verður stundum afar skrautlegur ;P

En já……. ég hlakka alveg geðveikt til og heyrðu annars… hér er spurning til strákana….. Á að hafa karlareiðtúra eins og hafðir eru kvennareiðtúrar??? svona reiðtúr án kellinganna????
Með kveðju frá hestafríkinni…