Ja þessi listi. Þeir hafa oft verið sýrðir á þessu blessaða blaði en neiiiii ekki eru þetta bestu gítarleikararnir? Andskotinn, ekki getur það verið svo glætan. Ég hef aldrei heyrt talað um að Joni Mitchell væri góður gítarleikari en hún semur og flytur frábæra tónlist. Neil Young sömuleiðis, frábær lagasmiður og “performer” (ég held meira að segja að Óla Palla finnist hann ekkert sérlega góður gítarleikari). Hvar eru Fagen og Becker úr Steely Dan fyrst aðrir litlir spámenn eru á listanum?...