Mér finnst fyrirkomulagið vera nokkuð gott, og sé ekki mikið af öðrum leiðum sem GSÍ gæti farið. Í sambandi við að síðasta mótið sé í september, þá er það bara fínasta mál. Á þeim tíma eru vellirnir ennþá í toppstandi og fínt að hafa lokamótið þá, eftir törnina í ágúst. Þessi tímasetning er til dæmis skárri en var áður, en þá var síðasta mótið í október. Ég er alveg sammála þér um það að það þurfi að verðlauna efstu menn mótaraðarinnar betur, það vantar einhverja gulrót fyrir toppkylfingana...