Ég verð að segja að skrif mín um framkomu starfsfólks á bókasöfnum hefur vakið misjöfn viðbrögð. Ég tæpti á almennum framkomueinkennum sem eiga við í öllum greinum sem á annað borð lúta að þjónustu. Ég kann að hafa hlaupið á mig í skrifum mínum um reglugerðir og annað sem viðkemur bókasöfnum en það kannski sýnir okkur það að reglurnar eru ekki nægilega sýnilegar og að við erum sjálf ekkert of mikið að kynna okkur þær. Ég held um fram allt að við verðum að virða reglur bókasafna þegjandi og...