Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

haffinn
haffinn Notandi frá fornöld 46 stig

Chievo og framtíðin (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Ég fór að pæla út af kosningunni hér um Chievo og hvort þeir myndu valda usla í framtíðinni. Ég verð að segja að ég tel hverfandi líkur á því. Í fyrsta lagi hefur þjálfarinn gefið það út að hann sé hugsanlega að hætta. Í öðru lagi held ég að stóru liðin (þ.e.a.s. Inter, AC Milan, Juve, Roma, Lazio og Parma) munu kaupa alla þeirra bestu menn. Í þriðja lagi er sennilegt að Chievo sé svona lið sem á eina góða leiktíð og munu vera í stöggli næstu árin. Annars er aldrei að vita hvað gerist!!!

Hver er besta fjárfestingin í byrjun? (9 álit)

í Manager leikir fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Ég hef prófað að kaupa menn eins og Kim Källström og Imbramovic o.fl. En ég hef mikið hugsað um það hver væri nú bestur bæði upp á “endursölu” og upp á það að skora og/eða stoðsendingar. Persónulega hefur mér hingað til fundist Källström fín fjárfesting þar sem hann er ekkert svaka dýr og er góður. En þar sem að ég hef nú ekki náð að komast nógu langt í leiknum til að sjá hver er bestur þá langar mig að spyrja ykkur hver ykkur finnst bestur?

Árángur ítalskra liða í Evrópu! (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Eins og þið vitið er árángur liðanna á Ítalíu í Evrópu afar slappur undanfarin ár. Mín pæling er: Hvað gerðist. Ég meina á árunum 92-98 var það nánast undantekning ef að ítalsk lið var ekki í úrslitum. Það er ekki eins og að góðu leikmennirnir séu farnir til Spánar eða Englands. Það eru líka mjög góðir þjálfarar á Ítalíu. Ég er búinn að hugsa þetta fram og til baka og ég hreinlega finn ekki ástæðuna. Hafið þið einhverja hugmynd???

Shevchenko til Real Madrid? (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Real hefur samkvæmt vísi.is boðið 9 milljarða í hann. Það er að sjálfsögðu ógeðsleg upphæð og sýnir það að þetta dæmi hjá FIFA um breytingar á leikmannmarkaðnum virkuðu ekki. Nú er bara að vona að peningar séu ekki allt hjá liðinu og að þeir neiti þessu tilboði! Áfram AC Milan!!!

Hverjir vinna deildina? (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Þjálfari Chievo segir að aðeins Juve og Roma hafi burði til að vinna deildina. Ég er mjög ósammála. AC Milan og Inter hafa verið að spila betur en bæði þessi lið undanfarið að ógleymdu Chievo. Ég hef trú á að deildin verði spennandi en endi svona: 1.AC Milan 2.Roma 3.Juventus 4.Inter 5.Chievo
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok