Datt bara í hug að nefna nýjan breskan “rusl” höfund sem allir Pratchett aðdáendur ættu að hafa ánægju af. Hann heitir Jasper FForde og hafa verið gefnar út (amk) tvær bækur eftir hann. Sú fyrri: The Eyre Affair Síðari: Lost in a Good Book. Skemmtibækur eftir bókaorm handa bókaormum en þar sem hann er breskur þá eru reyndar allar tilvísanir á ensku.