Valdar eru tvær heiltölur á bilinu á milli 2 og 99 (2 og 99 eru með). Aðili A fær að vita margfeldi talnanna. Aðili B fær að vita summu talnanna. A: Ég veit ekki hverjar tölurnar eru. B: Ég vissi að þú vissir það ekki, ég veit það ekki heldur. A: Núna veit ég hverjar tölurnar eru. B: Ég líka. Hvaða tvær tölur voru valdar?