Þar sem lítil umræða hefur verið um þessa hljómsveit ákvað ég að skapa eina. Þessi hljómsveit kom mér mjög á óvart miðað við hvað þeir höfðu spilað stutt saman. Aðeins 2 mánuði að sögn Óla Palla…og miðað við það og hversu þéttur hljóðfæraleikurinn var þá býst ég við að það sem á eftir að heyrast frá þeim í framtíðinni verði eitthvað allsvakalegt. Hljóðfæraleikararnir voru allir mjög færir og fannst mér þeir eiga 3. sætið fylilega skilið.