Þessi grein birtist eftir mig í Fréttablaðinu 30 september síðastliðinn. Ég hef verið að velta fyrir mér hver framtíð landsbyggðarinnar er. Nýlega bárust fréttir frá Seyðisfirði um að öllu starfsfólki í frystihúsi bæjarins verið sagt upp. Ástæðan er rekstrarörðuleikar. Fyrir nokkrum árum voru stærstu fyrirtækin í sjávarútvegi, Útgerðarfélag Akureyringa og Samherji, að hamast við að kaupa frystihús í minni byggðalögunum. Siðan keypti Eimskip Útgerðarfélag Akureyringa og fylgdi togari gjarnan...