Um daginn var mér boðið út með “strákunum”.
Ég sagði konunni minni að ég myndi koma heim á miðnætti……..
…..LOFAÐI ÞVÍ reyndar.
Jæja en eins og gerist og gengur skemmtum við strákarnir okkur alveg sérlega
vel.
Það var mikið drukkið og tíminn bókstaflega FLAUG áfram.
Svo það var ekki fyrr en rétt fyrir klukkan þrjú þegar ég var orðinn
“mátulega” fullur…..
(þeas þegar ég var farinn að horfa girndaraugun á besta vin minn og farinn
að kalla hann nafni konunnar minnar )…..að vinum mínum þótti ráðlagt að
senda mig heim í leigubíl.
Um leið og ég lokaði útihurðinni að baki mér heima byrjaði kúkú klukkan
okkar að gala þrjú
(stofuklukkan okkar er með fugli sem galar “khú-khú” á heilum og hálfum
tíma).
Ég gerði mér fljótt grein fyrir því að konan myndi líklega vakna við hljóðin
svo mér datt það snjallræði í hug að gala bara níu sinnum í viðbót, þannig
myndi konan halda að klukkan væri tólf á miðnætti.
Ég var virkilega stoltur af sjálfum mér að hafa dottið þetta snjallræði í
hug og þegar ég lagðist í rúmmið við hliðina á konunni gerðist ég svo
djarfur að kyssa hana á kinnina áður en ég steinsofnaði (dó) við hliðina á
henni.
Jæja, næsta dag þegar ég dröslaðist fram úr og settist fyrir framan
sjónvarpið spurði konan mig hvenær ég hefði komið heim og svaraði ég henni,
enn stoltur af frammistöðu minni nóttina áður, að ég hefði jú komið heim á
áætluðum tíma eða á miðnætti.
Hún virtist taka því sem góðu og gildu svari svo ég andaði léttar og hugsaði
með mér að ég hefði aldeilis komist upp með allt saman.
En rétt í þann veg er ég var að koma mér þægilega fyrir í sófanum (þeas var
alveg að sofna) tilkynnti konan mér að við þyrftum endilega að kaupa nýja
“kúkú” klukku í stofuna.!!
Ég spurði hana hissa hvers vegna í ósköpunum við þyrftum þess þá svaraði
hún “Jú sjáðu til,… í nótt galaði hún þrisvar sinnum, sagði síðan ” æ
djöfullinn", galaði fjórum sinnum í viðbót, ræskti sig áður en hún hélt
áfram, galaði þrisvar sinnum, flissaði í dálítinn tíma, galaði svo tvisvar
sinnum í viðbót áður en hún lauk sér af með því að prumpa samfleitt í 20
sek!!!!!!!!!!!!!!!!!