Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

gomamiso
gomamiso Notandi frá fornöld 38 ára kvenmaður
808 stig Sambandsstaða: Á lausu
Hefur áhuga á: Körlum
Vatn er gott

Re: Voldemort og nefið hans

í Harry Potter fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ég held að Rowling hafi ýmindað sér hann svona. Meina, rifur eru rifur. Það hefði bara verið enþá asnalegra ef nefið hefði verið á með rifunum :O/… eða þannig ýminda ég mér það. Ég bjóst við því að þetta yrði miklu verra, jafnvel gráthlægilegt. En mér stökk ekki bros allan tíma.

Re: Smá pælingar-Spoiler !

í Harry Potter fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Hugsaðu þér Hitler ;O) Hann var einn merkasti maður síðustu heimsstyrjaldar.

Re: Harry Potter nördar á Akureyri!

í Harry Potter fyrir 20 árum, 5 mánuðum
nei vá, meinti á miðvikudag?

Re: Harry Potter nördar á Akureyri!

í Harry Potter fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Er forsýningin á morgun? …fimmtudag????

Re: Horcrux

í Harry Potter fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ég verð að segja þetta… Að þýða þetta orð finnst mér jafn asnalegt og að þýða Hermione í Hallfríður… :O/ Harry í Hermann og Ron í Reyni…

Re: Horcrux

í Harry Potter fyrir 20 árum, 5 mánuðum
En af hverju að þýða þetta?…barn út í Bretlandi veit ekki hvað þetta þýðir frekar en okkar…

Re: Horcrux

í Harry Potter fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Það á bara ekkert að vera að þýða orð sem maður skilur hvort sem er ekki á íslensku. Helkross?!!! Á að tengja þetta við Helvíti og Kross?… Galdur sem er kominn frá helvíti og er samt kristilegur…þetta er latína, horcrux, do not translate. úff…

Re: Horcrux

í Harry Potter fyrir 20 árum, 5 mánuðum
HA? þú hlýtur að vera að grínast…

Re: !.......

í Harry Potter fyrir 20 árum, 5 mánuðum
akkúrat… Ég hélt að toppinum hefði verið náð þegar Mad-eye Moody varð Skröggur Illauga…

Re: Ginevra eða Virginia?

í Harry Potter fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ginerva Weasley :O)

Re: !.......

í Harry Potter fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Lítum á björtu hliðarnar, þetta var allavega ekki ScrumGAUR og HORkross… ;O) Ok, svolítið langsótt, fannst þetta fyndið…á tímabili

Re: Varðandi þýðingu á Harry Potter bókunum

í Harry Potter fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Já, en líttu á björtu hliðarnar ;O) Kannski á Rowling eftir að gera einhvera auka bók, einhverja litla…HEY hvað með Fantastic beasts and where to find them? … nei ég veit ekki, mér finnst þetta eitthvað svo sniðug hugmynd, þú verður að koma henni einhvernvegin áfram …

Re: Þið vitið... þarna skammstöfunin í lokin!

í Harry Potter fyrir 20 árum, 5 mánuðum
…og kannski ekki ;O) Æ, við förum svolítið langt með ýmindunaraflið stundum. Oftast eru þetta bara einhverjar auðveldar lausnir eins og þú ert að benda á. Við vitum afskaplega lítið um heim Rowling sem hefur að geyma endalausar persónur sem við vitum ekkert af. …svona er lífið víst í Harry Potter heiminum… :O)

Re: Varðandi þýðingu á Harry Potter bókunum

í Harry Potter fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Þetta er sniðugt að vissu leiti :O) En 5 kaflar á 2 vikum, láttu þig dreyma. Ég er að þýða smásögu í ensku sem er aðeins 4 blaðsíður. Ég er búin að vera viku að því. Maður þarf að vera skír í kollinum. Það er ekki hægt að halda bara áfram og áfram eins og stærðfræði dæmi. En sambandi við aldurinn hérna þá er náttúrulega hægt að skipta þessu niður til þeirra sem hafa góðan skylning á ensku og geta skrifað vel en það eru bara svo fáir. Þetta er full vinna og frekar erfið, við yrðum heillengi...

Re: Draw Club innleggið mitt :)

í Myndasögur fyrir 20 árum, 5 mánuðum
..já, ætli það ekki. :O) Helvítis þróun alltaf hreint…getur aldrei staðið í stað. ;O)

Re: Draw Club innleggið mitt :)

í Myndasögur fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Þú segir nokkuð. En ég hef heyrt að P7 sé auðveldari og betri… það er kannski bara persónubundið :O)

Re: Sendi takkinn hefur verið fjarlægður

í Myndasögur fyrir 20 árum, 5 mánuðum
já, auðvitað. Ein ekki alveg að hugsa ;O)

Re: Draw Club innleggið mitt :)

í Myndasögur fyrir 20 árum, 5 mánuðum
hey, verð að prufa það ;O) Ég var með P7 en ég hafði aldrei tækifæri til þess að nota það neitt að ráði svo ég hef eiginlega bara PCS…En núna ætla ég að reyna að redda mér hinum ;O)

Re: Þetta er sjúkt!

í Myndasögur fyrir 20 árum, 5 mánuðum
telja niður?

Re: Furðulegt

í Harry Potter fyrir 20 árum, 5 mánuðum
híhí, verð að læra það ;O)

Re: Sendi takkinn hefur verið fjarlægður

í Myndasögur fyrir 20 árum, 5 mánuðum
En hvernig eigum við að senda þér myndir þá? bara e-mail? :O)

Re: Furðulegt

í Harry Potter fyrir 20 árum, 5 mánuðum
tja, reyndar ekki. Eins og villu fjöldin sem hefur verið í þeim síðastliðin ár þá er maður farinn að gefast upp á þessu. Ég er fór yfir í ensku bækurnar þegar sú 4 kom út…þetta er svona eitt af því sem fer í taugarnar á mér…illa þýddar bækur. :O) Jább, ég er kröfuhörð ;O)

Re: Draw Club innleggið mitt :)

í Myndasögur fyrir 20 árum, 5 mánuðum
neih, í alvöru :O) ég hef aldrei náð svona góðri mynd þar. Ég er með Photoshop CS núna…en já, nokk merkilegt :O)

Re: Draw Club innleggið mitt :)

í Myndasögur fyrir 20 árum, 5 mánuðum
rosalega flott mynd ;O) Sammála með hárið, það er rosalega flott, og reyndar andlitið líka og skartgripirnir. Í hvaða forriti gerðuru þetta?

Re: Furðulegt

í Harry Potter fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Þetta er lélegt! ISs, ég sem ætlaði að lesa íslensku útgáfuna með bjartsýnum augum… þetta er virkilega léleg mistök. Þið bara afsakið en þær íslensku bækur sem ég á hafa aldrei staðist yfirferð mína með stafsetningarvillur og annað. Nú er ég sko búin að missa álit á þessum íslensku. Taka meiri tíma í þetta og vera vandvirkari, hverjum er ekki sama þó bækurnar komi aðeins seinna?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok