Það sem þú gætir gert er að bjóða húsfélögum ódýra þrifþjónustu. Ryksuga, skúra, pússa hurðarnar og allt annað sem þarf að gera. En þú þarft þá líka að vera duglegur og mæta í hverri viku(flest húsfélög þrífa einu sinni í viku) Einnig gætir þú boðið fram þjónustu við að moka snjó(ef það færi nú að snjóa). Látum okkur sjá, þú gætir hengt upp auglýsingar þar sem þú býður fram hjálp þína við flutninga, garðvinnu, og fleira. Það er erfiðast að koma sér af stað. En mundu að maður þekkir mann og...