Ég hef verið að velta fyrir mér hvort það sé hreinlega í tísku að vera ólétt um þessar mundir. Jújú, maður man nú alltaf eftir óléttum konum en mér finnst þær óvenju margar í ár. Ég á t.d. vinkonur sem eru bomm og þær sverja fyrir það að hafa verið á pillunni þegar kúlubúinn kom undir, ég skaut því pent að þeim að þá hljóti þetta að vera annaðhvort í vatninu eða að þær séu allar á sömu pillunni og að það hafi komið gölluð sending til landsins. Ekki mistúlka þetta, ég hef alls ekkert á móti...