Ég fór á öll 3 kvöldin bæði á Nordica og á Rúbín. Fannst seinasta kvöldið best sérstaklega þegar KK & frakkarnir spiluðu. Magic Slim & the Teardrops, Nordic all star band, Bláir Skuggar, Jolly Jumper & Big Moe voru allir frábærir. Var ekki alveg að fíla Yardbirds og Tina Palmer en annars var þessi hátíð mjög góð. Svo var líka gaman á Rúbín, öðruvísi stemming. Var sjálfur að spila á þriðjudeginum þar og það var geðveikt. Blúshátíðin verður bara betri með hverju ári.